Háskóli Íslands Málshættir og myndir

Hvaða málsháttur er á myndinni?

Þú sérð mynd sem sýnir íslenskan málshátt. Skrifaðu málsháttinn. Ef hann vefst fyrir þér færðu fimm möguleika að velja úr.

Rétt skrifað
allt að 100 stig
Næstum rétt orðað
allt að 80 stig
Rétt valið úr fimm
30 stig

Full stig fást fyrir svar innan 20 sekúndna. Eftir það lækka stigin örlítið. Eftir því sem þú leysir fleiri myndir færðu verðlaun. Með aðgangi getur þú líka komist á stigatöfluna. Leystu 5 myndir á dag til að byggja upp daglega röð.

Þú getur byrjað strax. Skráning er valfrjáls. Ertu þegar með aðgang?

Leikurinn er hluti af rannsókn við Háskóla Íslands. Við skráum svörin og hversu langan tíma þau taka, en ekkert sem auðkennir þig nema þú skráir þig.