Háskóli Íslands Málshættir og myndir

Um verkefnið

Málshættir og myndir er hluti af meistaraverkefni í máltækni (MA) við Háskóla Íslands.

Höfundur: Alfa Magdalena B Jórunnardóttir, meistaranemi í máltækni við Háskóla Íslands. Leiðbeinandi: Hafsteinn Einarsson.

Markmiðið

Markmið verkefnisins er að meta hversu vel myndgerðarlíkön ná að fanga íslenska málshætti í myndum.

Síðar er ætlunin að nota myndirnar og svörin til að búa til fjölþátta próf fyrir stór fjölþátta mállíkön. Prófið kannar hvort líkönin geti ráðið málshátt út frá mynd.

Leikurinn

Leikurinn safnar mannlegum viðmiðum: hversu vel fólk þekkir málshættina út frá myndunum. Þú getur líka gefið myndinni þumal upp eða niður til að meta hvort hún lýsi málshættinum vel.

Gögnin þín

Svör þín eru skráð ásamt tímunum sem þau taka og hvernig svarið var metið. Þú þarft ekki aðgang til að spila. Ef þú skráir þig getur þú valið hvort þú birtist á stigatöflunni. Svörin eru notuð í rannsókninni.

Málshættirnir og myndirnar

Málshættirnir eru fengnir af tilvitnun.is og af íslenskri Wikipediu. Myndirnar eru búnar til með myndgerðarlíkönum.